print page print page
Islandia

THOR verkefnið fæst við að rannsaka stöðugleika Hita-Seltuhringrásarinnar í samræmi við þann kafla sjöundu rammaáætlunar ESB sem snýr að veðurfarsbreytingum, stefnu og ógnunum. Þessi sjöunda rammaáætlun er í gildi 2007 til 2013 og stefnir að framförum í tækniþróun og þekkingu. THOR verkefnið hófst í desember 2008 og stendur til loka ársins 2012. Verkefnið er samvinna 20 háskóla og rannsóknastofnana í 9 Evrópuríkjum. Stjórnun þess er í höndum Haffræðistofnunar háskólans í Hamborg.

Skammstöfunin, THOR, stendur fyrir “ThermoHaline Overturning at Risk ?”. Markmið verkefnisins er að koma upp kerfi sem mun vakta og spá fyrir um breytingar á hita-seltuhringrás Norður Atlantshafsins á næstu árum og áratugum og meta stöðugleika og hættu á dvínun hennar við breytt veðurfar. Þetta mun verða gert með kerfisbundnum athugunum og líkönum, þar sem verða athuganirnar verða notaðar til þess að stilla veðurfarslíkönin jafnharðan með þeim. Þetta útvegar gögn frá nokkrum lykilsvæðum á jörðinni sem verða notuð til þess að spá fyrir um breytingar á loftslagi jarðar með hnattrænum og gagnvirkum haf-og loftslagslíkönum.

Hedinn Valdimarsson
HAFRANNSOKNASTOFNUNIN | Marine Research Institute
Skulagata 4, Reykjavik
101 Iceland

 

Back to THOR

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

typo3 by akea
Open Source Web Design - original design by tri-star web design